Ok ok ... sit hérna í sófanum í menntaskólanum á Egilsstöðum og hugsa um dauða drauma.. EINS OG AÐ BYRJA BLOG MEÐ STEINUNNI!!
En Steinunn kýs frekar að drekka tíu dropa af kaffi og tala um slúður af fjörðunum ..
Sit og hlusta á lagið
Heart Of Glass sem Blondie gerðu frægt fyrir .. mörgum árum.En það söng hún Hildur Vala, tilvonandi eiginkona mín og idolstjarna Íslands.
En ég bætti norðurlandametið í hnerri áðan þegar ég hnerraði nokkrum kílóum af hori, og sló þar af leiðandi metið hans William's holokogo, Þýskur skósmiður sem kom heiminum á óvart með því að hnerra 12 kílóum árið 1945.
En ég bætti ekki metið lengdarlega séð, vegna þetta endaði allt í andlitinu á mér.
Helgi .. veikur :/
-
Helgi|
11:53 PM |
Friday, March 11, 2005
HILDUR VALA SIGURVEGARI Í IDOL !!!!Já hún Hildur Vala Einarsdóttir vann idol keppnina og gæti ég ekki verið ánægðri með það enda hélt ég með henni frá því ég sá hana fyrst.Og já, svo er ég ástfanginn af henni.
Ég er farinn út að öskra nafnið hennar!
-
Helgi|
11:22 PM |
Sunday, March 06, 2005
Daddara....Var að koma úr menntaskólanum þar sem ég var í heimsókn hjá eiginkonu minni til margra mánaða, henni Steinunni. Við vorum á hljómsveitaræfingu og skrifa sögur.. var það hörkustuð.
Nú vil ég vita.. ef einhverjir lesa þetta leiðinlega blogg, skrifiði í comment!
p.s ég var að koma úr sturtu.
-
Helgi|
11:32 PM |
Thursday, March 03, 2005
JÆJA Steinunn !Ég er búinn að vera í tveimur prófum í morgun .. í Íslensku og dönsku .. Íslenskan gekk vel en danskan gekk eins og í hebreskum fangabúðum .. semsagt Illa þótt ég viti ekki um það hvernig mér gekk.
En í sambandi við Steinunni!
Ég er reiðubúinn í að stofna nýtt blogg með henni, en helvítis selakoppurinn er alltaf eitthvað upptekin .. Er Steinunn að guggna á þessu ?!
-
Helgi|
3:16 PM |
Danska!!!Ég á að fara í dönskupróf á morgun, úr bók sem ég skil ekki, og þar að auki kann ég ekki dönsku.. alveg æðislegt að geta fengið góða hjálp þarna...einu sinni á viku...hreint út sagt æði...Allavega þá get ég alveg eins ekki mætt.
-
Helgi|
12:28 AM |
Wednesday, March 02, 2005
Jæja ! Nú ætla ég að byrja blogga aftur og mun ég reyna gera það á hverjum degi.. ef ekki þá er það vegna leti.
En var að koma úr bandýi og er er ótrúlega þreyttur .. mættu 15 manns og maður spilaði annan hvern leik sem ykkur er örugglega alveg sama um EN .. ´
.. Ég mun bráðlega byrja nýtt blogg með eiginkonu minni til margra ára, Steinunni .. en við erum í tilvistarkreppu og vitum ekki hvort við séum gift lengur eða ekki.
Mun samt halda áfram að skrifa hérna .....
Meira á morgun!
-
Helgi|
12:38 AM |
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com