Ég er í bloggstuði!Ég mun héðan í frá bara blogga þegar ég er í skólanum...en mér leiðist og ég sit hér í kennsluhúsi ME, nánar tiltekið í rauðusófunum.
Föstudagur í dag sem þýðir að idol er í kvöld ( eða á morgun vott efer ) og partý partý stuð stuð...eða ekki.
Ball á morðfirði í kvöld og veit ég ekki um marga sem ætla ...samt veit ég alveg um marga.
Svo fór ég í mat í hádeginu upp í ME og settist við hliðina á Laufey ...sem bæ ðe vei þarf að finna sinn innri anda og leyfa manni að éta í friði ÁN ÞESS AÐ HENDA MAT Í MANN OKEI?
Hún byrjaði.
Svo var Berglind með einhvern penna í íslenskutíma í morgun og sagði mér að prófa hann ...ýtti á dótið sem lætur pennan skrifa og fékk þennan ógeðslega rafmagnstraum og henti pennanum, þetta var mjög vont!
Svo prófaði ég þetta við 2 manneskjur, Bjössa og Hjördísi reyðfirðing.
Lét þau prófa pennan og þau smelltu á hann, Bjössi misskildi eitthvað og fékk heiftarlega fullnægingu en Hj-rdís kipptist svo mikið við að hún missti pennan og grét og hljóp út.
Leiðinleg færsla? Ójá!
-
Helgi|
1:50 PM |